
Fegurðin að innan þykir best
Velgengnin var innihaldsrýr fyrir Mae Chee Sansanee þegar hún naut hennar sem fyrirsæta og kaupsýslu maður. Sem Búddanunna,sjónvarpskona og talsmaður heimsfriðar lifir hún hins vegar lifinu til fulls.Jón Sigurður Eyjólfsson alddi við hana í hofi búddistafélags Íslands.
Amtur hversdagsins gleymist fljótt þegar komið er inn í hof Búddistafélags Íslands Í Kópavogi. Blodamaður gengur vasklega inn og ætlar ad taka í spaðann á gestgjöfum en fær örlítinn kjánahroll þegar það rennur upp fyrir honum að á þessum bæ er venjan að hneigja sig frammi fyrir viðmælanum með lófana saman við brjóst.
Um 800 manns eru skráðir í félagið flestir þeirra eru Taílendingar en einnig eru nokkrir Íslengingar innanborðs,segir Petcharee Deluxasana sem býður blaðamanni að kalla sig Petru þegar hún sér að honum vefst tunga um tönn, ,,Hingað getur fólk komið og hlustað á hugvekju munkanna, þetta er bara svípað og í messu hjá Íslendingum, segir Petra.,,Svo getur fólk rætt við munkinn,létt á hjarta sínu og fengið hjá honum leiðbeinningar um það hverning fott er að bera sig að í þeim aðstæðum sem komið hafa upp hjá viðkomandi.Fólk kemur með mat og síðan borðum við öll saman,
Í dag gætir mikillar eftirvæntingar í hofinu letla því nunnan Mae Chee Sthirsuta er væntangleg þennan morgun.Og loks þegar hún kemur tekur blaðamaður á móti henni með þvi að hneigja sig að hltti búddista og telur sig nokkuð veraldarvanan þar til að hann sér að flestir aðrir krjúpa á kné fyrir framan hana.
Talar um Halldór Laxness í sjónvarpinu
,,Ég var á ferðalagi um landið í gær, segir Mae Chee þegar hún er búin að heilsa upp á trúbræður sína í hofinu.,,Þad er afskaplega fallegt. Ég var með tökumann með mér og við tókum upp nokkuð mikið efni sem ég mun nota í sjónvarpsþáttinn ninn. Ég kom til dæmis við á Gljúfrasteini og talaði um Halldór Laxness og tók upp eitt innslag. Blaðamaður spyr hvað hún hafi sagt þer um skáldið okkar ? ,,Ég sagði að hann hefði lifað hamingjuríku lífi og fært sjálfum sér og öðrum ómælda gleði. Og hann þurfti ekki mikið till þess; aðeins einn blýant. Þetta er áminning til okkar hinna um að við þurfum ekki svo mikið til að finna hammingjuna og gera heiminn ögn betri.
Hún leitast við að vekja fólk til umhugsunar um andleg málefni í sjónvarpsþáttum sínum ,,Fjölniðlar eru verkfæri og ef það er rétt notað getur það hjálpað fólki að lifa góðu lifi. Þegar þanning tekst til verður kraftaverk fyrir tilstuðlan fjölmiðlanna.
Hún er ekkin eingöngu í því að hafa áhrif á aðra í gegnum fjölmiðla þvi alla vega einu sinni hefur afurð annarra breytt lífi hennar. Kvikmyndaframleiðandinnn Victoria Holt gerði kvikmynd um hana og heitir hún Viskugagan eða The Walk of Wisdom of er Mea Chee sérlega ánægð með það hverning til tókst.,,Þetta var mjög vel gert og myndin hafði mikil og jákvæð áhrif í lífi mínu, segir hún.
Að hugsa um fólk sem samherja
Mea Chee var farsæl fyrirsæta og kaupsýslumaður áður en hún gerðist nunna.Var ekki erfitt fyrir hana að fórna slíkum starfsframa og lileinka sér meinlætalíf nunnunnar ? ,, Þvi er ekki að neita ad ég átti mikilli velgengni að fagna en þó var eitthvað innra með mér sem sagði að eitthvað vantaði upp á til þess að ég gæti lifað hamingjuríku lífi þrátt fyrir allt. Við þekkjum það að til er fólk sem nýtur mikillar hylli en kann síðan ekki fótum sínum forráð þar sem er ekkin í sambandi við sjálft sig. Í mínu tilfelli var ekki annað að gera en að fara þann ver sem gerði mér unnt að upplifa hamingjuna og hlýða innra kalli hvað sem tautaði og raulaði í hinum ytra heimi.
Reynslan af umskiptunum hefur reynst henni vel þegar hún er að tala til ungu kynslóðarinnar en mikið af hennar starfi felst í því að vekja ungdóminn til umhugsunar um andleg málefni. ,,Flestum er kennt að lifa í samkeppni við aðra því þú þarf ad bera af til þess að verða hetja. En ég vil að fólk líti á samferðafólk sitt sem samherja. Við erum öll ólik og það er svo misjafnt hvaða leið mönnum er heillavænlegast að fara til þess að gera líf stii og annarra gleðiríkara og eins er misjanfnt hvað fólk hefur fram að færa til heimsins.
Hún hefur fleira að segja þeim yngri og líklegast gæti mörgum eldri Íslendingum verið hollt að leggja einnig við hlustir.,, Í búddisma er lögð rík áhersla á það að lifa hér og nú. Afar margir vilja nefnilega gleyma sér við þad ad hugsa sífellt um afrekstur þess sem þeir eru að fera. En það er nú einu sinni svo að gera. En þad er nú einu sinni svo að menn uppskera eins og þeir sá svo ef þú sáir hinu góða verður uppskéran eftir því. Fólk mætti því, í trausti þess, einbeita sér að því sem þad er að gera hverju sinni og ef það er gott verk þá verður þeim launað ríkulega.
Fyrirlitning dugar skammt
Það er ekki hægt ad ætlast til þess að allir lifi samkvæmt þínum hugmyndum um það hvernig allt eigi að vera |
Glöggt er gestsauga og þar sem Íslandsvinurinn atarna hefur víða farið til að ausa úr sínum viskubrunni ákvað blaðamaður að spyrja hana út í deilu sem risið hefur hér á landi. Það er að segja um heimsókn ráðamanna til Kína þar sem sessunautar þeirra verða kínverskir ráðamenn, en þeir hafa slæmt orð á sér fyrir að virða mannréttindi að vettugi.,, Ég er gestur hér svo ég ætla mér ekki að segja íslenskum ráðamönnum hvað þeir eigi eða eigi ekki að gera. En svona almennt get ég sagt að við búddistar leggjum áherslu á að nálgast hlutina eins og rannsóknarmaður frekar en beinn þátttakandi. Það er ýmislegt sem við verðum vitni að sem okkur þykir miður fallegt. Í stað þess að taka þátt í því eða fyllast fyrirlitningu á því má nota það sem tækifæri til að læra.
Þess vegna tel ég að það sé engum til góðs að leggja fæð á einhvern og útiloka hann. Þanning eru litlar líkur á því að hann fáist til að breyta hátterni sínu. Fyrsta skrefið til að ná fram breytingum er að sætta sig við fólk eins og það er. Það er ekki hægt að ætlast til þess að allir lifi samkvamt þinum hugmyndum um það hvering allt eigi að vera.
° Kúnstin ad kveðja
HVER ER MAE SANSANEE STHIRASUTA ?
Sem ung kona átti Stirasuta mikilli velgengni að fagna sem fyrirsæta í Tailandi og einning í viðskiptalifinu. En fyrir 29 árum ákvað hún að gerast Búddanunna. Hún stofnaði andlegu miðstöðina Sathira-Dhammasathan í Bangkok árið 1987.Þer er rekið fræðasetur sem er öllum opið. Hún leggur mikla áherslu á start með ungu fólki og segist vona að það verði til þess að í framtípinni munu þær kynslóðir gefa af sér leiðtoga sem munu leysa ágreining á friðsælan hátt. Hún er önnur tveggja formanna fyrir Heimsfriðarfrumkvæði kvenna (Global Peace Initative of Women). Samtökin eru stofnuð til ad stuðla að því ad konur láti til sin taka um að koma á friði Í heiminum.Hún vinnur einning á vegum Sameinuða þjóðanna að því ad styrkja og styðja æskuna um heim allan.Hún er einning með sjónvarpsþætti á tailensku rikisstöำðinni stöð fimm þar sem hún fjallar um andleg málefni.
Árið 2004 gerði breski kvikmynda framleiðandinn Victoria Holt kvikmyndina Viskuvegurinn eða The Walk of Wisdom sem fjallar um starf og ævi Mea Chee Sansanee. |
Trúbræðrunum fjölgar í hofinu og matarbökkunum um leið því flestir koma færandi hendi. Blaðamaður sýnir á sér fararsnið því beðid er eftir að Mae Chee setjist við borðsendann. Hann kveður því viðmælanda sinn margs vísari um Mae Chee og búddisma en þó láðist honum að krjúpa á kné að skilnaði, það hefði þó verið vel við hæfi. Sem betur fer tekur nunnan fólkinu eins og það er,